- Skólinn
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
Rafn Markús Vilbergsson hefur verið ráðinn skólastjóri Njarðvíkurskóla. Rafn Markús lauk B.Sc. prófi í íþróttafræði með kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskóla frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008, M.Ed. í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands árið 2014 og hóf nám í opinberri stjórnsýslu við sama skóla árið 2023.
Rafn Markús hefur starfað í Njarðvíkurskóla frá árinu 2009, sem umsjónarkennari, deildarstjóri, verkefnastjóri, aðstoðarskólastjóri og starfar nú sem deildarstjóri eldra stigs.
Rafn Markús tekur við skólastjórastarfinu af Ásgerði Þorgeirsdóttur sem lætur af störfum í sumar eftir langan og farsælan feril í Njarðvíkurskóla.
Frétt af vef Reykjanesbæjar
Brekkustígur 2 | 260 Reykjanesbær Sími á skrifstofu: 420-3000 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Netfang: njardvikurskoli@njardvikurskoli.is
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420-3000 / njardvikurskoli@njardvikurskoli.is / Á Mentor.is