Sigríður Þóra tilnefnd til Söguverðlauna Menntamálastofnunar

Sigríður Þóra ásamt Þorgrími Þráinssyni á verðlaunahátíðinni, Í takt við tímann og hvað svo, á dögun…
Sigríður Þóra ásamt Þorgrími Þráinssyni á verðlaunahátíðinni, Í takt við tímann og hvað svo, á dögunum.

Sagan Soffía frænka eftir Sigríði Þóru hefur verið tilnefnd til Söguverðlauna Menntamálastofnunar og RÚV 2021 sem veitt verða á verðlaunahátíð í Hörpu 5. júní í beinni útsendingu á RÚV. Sigríður er ein af 20 krökkum á landinu sem er tilnefnd eftir að hún sendi smásöguna sína í keppnina.

Sagan hennar ásamt öðrum tilnefndum sögum munu vera hluti af Risastórum smásögum 2021, rafbók sem gefin verður út í júní af Menntamálastofnun.

Þeir nemendur sem fegnu tilnefningu var einnig boðið að taka þátt í meistarabúðum þar sem nemendur fá tækifæri til að taka þátt í ritlistarsmiðjum með fleiri rithöfundum.

Njarðvíkurskóli óskar Sigríði Þóru innilega til hamingju með þennan árangur.