Skólaslit Njarðvíkurskóla 2020

Nemendur fæddir 2003
Nemendur fæddir 2003

Skólaslit hjá nemendum í 1.-10. bekk í Njarðvíkurskóla verða á sal skólans fimmtudaginn 4. júní á eftirfarandi tímasetningum:

- 1.-2. bekkur kl. 8:30
- 3. bekkur kl. 9:30
- 4. bekkur kl. 10:30
- 5.-6. bekkur kl. 11:30
- 7.-9. bekkur kl. 13:00
- 10. bekkur kl. 17:30

Vegna aðstæðna í ár er mælst til að ekki fleiri en 1-2 fylgi hverjum nemanda á skólaslitum í 1.-9. bekk. Nemendur fá vitnisburð skólaársins afhentan á sal á skólaslitum.

Skólaslit hjá nemendum í 10. bekk verða við hátíðlega athöfn á sal skólans fimmtudaginn 4. júní kl. 17:30. Vegna aðstæðna í ár er aðeins gert ráð fyrir að foreldrar mæti með sínu barni á skólaslitin.
Að loknum skólaslitum verður hátíðarkvöldverður hjá nemendum og kennurum þeirra. Fyrirkomulagið verður þannig að eftir skólaslit fara nemendur í hópmyndatöku og svo er fordrykkur á kaffistofu starfsmanna á meðan salurinn er undirbúin fyrir hátíðarkvöldverðinn. Gert er ráð fyrir að dagskrá sé lokið fyrir kl. 21:00.