Skólaslit Njarðvíkurskóla 2020

Nemendur fæddir árið 2004
Nemendur fæddir árið 2004

Skólaslit Njarðvíkurskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans 4. júní. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar til einstaka nemenda og nemendahópa.

Á skólaslitunum hjá 10. bekk spilaði Emilía Sara Ingvadóttir á klarinett og Geirþrúður Bogadóttir með undirleik á píanó lagið Almost A Waltz eftir David Lyon. Svo spilaði Emilía Sara á píanó lagið The Entertainer eftir Scott Joplin.

Þeir bekkir sem höfðu safnað flestum hrósmiðum á yngsta-, mið- og ungligastigi fengu viðurkenningu sem Medalíubekkir og voru það 2.KB, 6. MRF og 9. ÞRH sem voru með flesta hrósmiða eftir skólaárið.

Veittar eru viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í hverjum árgangi frá 7. bekk og voru það eftirfarandi nemendur sem fengu bókagjöf fyrir:
7. bekkur: Kristín Arna Gunnarsdóttir og Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir
8. bekkur: Guðmundur Leo Rafnsson
9. bekkur: Rannveig Guðmundsdóttir
10. bekkur: Krista Gló Magnúsdóttir

Skólinn veitti eftirfarandi nemendur viðurkenningu fyrir framfarir í námi:
7. bekkur: Magdalena Sunna Rawluszo og Hildur Ingvadóttir
8. bekkur: Snorri Hörgdal Þórsson
9. bekkur: Sindri Snær Snorrason, Valur Axel Axelsson og Stefán Logi Ægisson
10. bekkur: Laufey Lind Valgeirsdóttir, Guðný Þóra Karlsdóttir, Margrét Guðfinna Friðriksdóttir, Nói Gunnarsson og Stefán Rúnar Snorrason

Aðrar viðurkenningar:
- Góður árangur í upplestri og framsögn í 7. bekk: Kristín Arna Gunnarsdóttir og Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir
- Góður árangur í námsgrein sem tengist umhverfinu og náttúrunni: Róbert Sean Birmingham 
- Góður árangur í stærðfræði í Ösp: Gunnar Björn Björnsson
- Viðurkenning fyrir virkni og vinnusemi í Björk: Þórhallur Óskar Jónuson

Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur fyrir einstaka greinar í 10. bekk auk valgreina. Það eru ýmis félagasamtök í nærsamfélagi skólans sem gefa verðlaunin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
- Íslenska: Erlendur Guðnason, Kári Snær Halldórsson og Krista Gló Magnúsdóttir
- Stærðfræði: Krista Gló Magnúsdóttir og Erlendur Guðnason
- Enska: Róbert Sean Birmingham
- Danska: Erlendur Guðnason og Krista Gló Magnúsdóttir
- Samfélagsfræði: Alexander Logi Chernyshov Jónsson 
- Náttúrufræði: Erlendur Guðnason
- Íþróttir: Ásgeir Orri Magnússon
- Fyrir góðan námsárangur í stærðfræði framhaldsskólastigi: Ingólfur Ísak Kristinsson og Alexander Logi Chernyshov Jónsson 
- Fyrir góðan námsárangur í ensku framhaldsskólastigi: Emilía Sara Ingvadóttir
- Íþróttastúlka Njarðvíkurskóla: Krista Gló Magnúsdóttir
-Íþróttadrengur Njarðvíkurskóla: Fannar Snævar Hauksson

Valgreinar:
- Textílmennt: Emelíana Líf Ólafsdóttir
- Myndlist: Aleksandra Czaplinska
- Hönnun og smíði: Sarah Guðbjörg Smáradóttir og Talía Mjöll Guðjónsdóttir
- Skrautskrift : Nedas Stanisauskas 
- Heimilisfræði: Krista Gló Magnúsdóttir
- Félagsstörf: Sigurður Magnússon 
- Unglingadeild Björgunarsveitarinnar Suðurnes: Bergmann Albert F. Ramirez, Elimar Freyr Jóhannsson, Elmar Sveinn Einarsson, Gabríel Veigar Björgvinsson, Nedas Stanisauskas og Stefán Rúnar Snorrason

Njarðvíkurskóli hefur undanfarin ár notið góðvildar grenndarsamfélagsins þegar á þarf að halda. Njarðvíkurskóli þakkar öllum þeim sem hafa styrkt skólann á skólaárinu.

Á skólaslitum 10. bekkjar talaði Sigurður Magnússon formaður nemendaráðs fyrir hönd útskriftarnema og Hulda Hauksdóttir og Torfi Gíslason, umsjónakennarar 10. bekkjar. Útskriftarnemendur fengu hátíðartrefla að gjöf frá skólanum í útskriftargjöf. Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri ávarpaði nemendur, foreldra og starfsfólk. Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið en þetta var 78. starfsár skólans.

Myndsöfn frá deginum:

Skólaslit hjá 1.-9. bekk 2020: 
https://www.njardvikurskoli.is/is/moya/gallery/index/index/_/skolaslit-hja-1-9-bekk-2020

Útskrift 10. bekkjar 2020:
https://www.njardvikurskoli.is/is/moya/gallery/index/index/_/utskrift-10-bekkjar-2020

Hátíðarkvöldverður 2020: https://www.njardvikurskoli.is/is/moya/gallery/index/index/_/hatidarkvoldverdur-2020