Skólastarf samkvæmt nýrri reglugerð

Skipulag skólastarfs frá mánudeginum 10. maí er með eftirfarandi hætti. Skipulagið byggir á reglugerð um takmörkun á skólastarfi sem gildir til og með 26. maí 2021. Tilhögun skólastarfsins getur verið ólíkt milli skóla þar sem aðstæður eru mismunandi.

Skipulagið byggist á eftirfarandi þáttum:
- Nemendur í 1.-10. bekk fá kennslu samkvæmt stundaskrá. En samkvæmt reglugerð eru þeir undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 100 nemendur í 1.-10. bekk í hverju rými. Blöndun milli hópa innan skóla er heimil.
.- 50 starfsmenn mega vera saman í rými og þeim er heimilt að fara á milli hópa. Sé starfsfólki ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun sín á milli og gagnvart nemendum ber þeim að nota andlitsgrímur. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu og tónlistarskóla.
- Frístundaheimilin verða opin til kl. 16:15.
- Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem í matsal, við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru heimilar með ofangreindum takmörkunum.
- Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólabyggingar en skulu gæta að sóttvörnum og bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra nálægðarmörk.
.- Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga skulu halda 1 metra takmörkun, bera andlitsgrímur og gæta sóttvarnaráðstafana.

Við hvetjum alla til þess að gæta að persónulegum smitvörnum, minnum á mikilvægi handþvottar og notkun spritts. Við erum í þessu saman.