Stóra upplestrarkeppnin í Njarðvíkurskóla

Logi, Þorgerður, Kristjana og Freydís
Logi, Þorgerður, Kristjana og Freydís

Í dag, 15. febrúar var Stóra upplestrarkeppnin haldin á sal Njarðvíkurskóla. Það er 7. bekkur sem tekur þátt í þessari keppni og voru það 12 nemendur sem tóku þátt en fyrir helgi var haldin bekkjarkeppni þar sem þessir 12 nemendur unnu sér rétt til þátttöku á sal.

Keppnin tókst einstaklega vel þar sem allir nemendur höfðu undirbúið sig vel, bæði í skólanum og líka heima fyrir. Nemendur lásu hluta af sögunni Kennarinn sem hvarf og komu síðan aftur upp og lásu ljóð að eigin vali. Dómarar í keppninni í ár voru þau Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi, Ásgerður Þorgeirsdóttir skólastjóri og Anna Hulda Einarsdóttir kennsluráðgjafi. Sigurvegarar í keppninni fá keppnisrétt á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fer fram í Hljómahöll 3. mars.

Sigurvegarar í Njarðvíkurskóla voru þau Kristjana Ása Lárusdóttir og Þorgerður Tinna Kristinsdóttir. Logi Örn Logason og Freydís Ósk Sæmundsdóttir voru svo valin sem varamenn þeirra. Þau fjögur muna halda áfram að æfa og undirbúa sig fyrir lokakeppnina.

Myndir frá keppninni má sjá í meðfylgjandi myndaalbúmi