Þemadagar 25. og 26. febrúar

Dagana 25. og 26. febrúar eru þemadagar í Njarðvíkurskóla með yfirskriftina Heilbrigð sál í hraustum líkama.  Þemadagar eru uppbrotsdagar þar sem hefðbundin stundaskrá er látin víkja og nemendur vinna verkefni í tengslum við þemað.  Á þemadögunum hefst skóladagur hjá öllum nemendum kl. 8:15 í heimastofu.  

Nemendum verður boðið upp á hafragraut báða morgnana á sal skólans frá kl. 7:45-8:10.

Tímasetningar eftir árgöngum:

Fimmtudagur 25. febrúar
1.-4. bekkur - kl. 8:15-13:20
5.-10. bekkur - kl. 8:15-14:00

Föstudagur 26. febrúar
1.-10. bekkur - kl. 8:15-13:20