Tilkynning frá Njarðvíkurskóla vegna COVID-19, Kórónaveiru

Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Njarðvíkurskóla

Eins og ykkur öllum er eflaust kunnugt um hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir hættustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (COVID-19). Undanfarinn mánuð höfum við lagt sérstaka áherslu á hreinlæti s.s. reglulegan handþvott og notkun handspritts í skólanum okkar með það fyrir augum að fyrirbyggja smithættu. Á veggi á öllum salernum skólans hafa verið festar leiðbeiningar um handþvott og í um tvær vikur hefur verið farið yfir helstu snertifleti (hurðarhúna og handrið) með sprittvökva reglulega og verður því haldið áfram. Mikilvægt er að heima sé rætt við börnin og þeim leiðbeint um handþvott, að hósta eða hnerra í olnbogabót en ekki lófa og annað sem fram kemur á meðfylgjandi skýringarmyndum.

Eins og staðan er í dag þá væri æskilegt að nemendur komi með sín eigin skriffæri í skólann en við munum samt sem áður vera með skriffæri fyrir nemendur í kennslustofum.

Við bendum jafnframt á mikilvægar upplýsingar frá Embætti landlæknis um hvernig forðast eigi smit kórónuveirunnar Covid-19 og hvað eigi að gera ef grunur vaknar um smit.

Einnig er bent sérstaklega á lykilsímanúmerið 1700, sem allir eiga að hringja í ef áhyggjur af smiti eru til staðar. Vefir almannavarna og embættis landlæknis eru bestu upplýsingalindirnar um þessi mál.

Stjórnsýslan og heilbrigðisyfirvöld vinna nú kappsamlega gegn útbreiðslu veirunnar og viljum við leggja áherslu á að farið sé að tilmælum sóttvarnalæknis og annarra sérfræðinga hvað snertir hreinlæti, sýkingarvarnir, sóttkví og samstöðu.

Hér má finna upplýsingar sem ætlaðar eru fyrir börn og ungmenni: https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item39277/Grunnupplysingar-um-koronaveiruna-fyrir-born-og-ungmenni?fbclid=IwAR0dQ7LnkDMF5cX7-citHdP2_-xmrlENAP_IrOXt782uQQBO1wK4_qNwgbY

Hér er fréttatilkynning frá Embætti landlæknis vegna kórónaveirunnar þar sem m.a. koma fram leiðbeiningar vegna ferðalaga, https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item39279/frettatilkynning-vegna-koronaveirunnar-covid-19-28022020?fbclid=IwAR3X30IWGunhIuhhmtTIi1nmX4UIF7WZ4mLkx_AmoFkSFr9gBsqjay-ILfA

As state of alert has now been issued because of the COVID-19 coronavirus The Department of Civil Protection and Emergency Management emphasizes the importance that everyone follows instructions issued by the Icelandic chief of epidemiology. Newest information can always be found on the web www.landlaeknir.is

Parents and guardians are asked to monitor regularly which areas have been defined as risk areas. If children or their families have been staying in those areas, they will need to go into quarantine as instructed by the Directorate of Health.

It would be wise that students bring there own pencils and other equipment to school for next weeks but we will still have school equipment in every classroom.

Parents of children who have a weak immune system or underlying respiratory diseases are advised to consult with their medical specialist or family doctor.

Individuals who have symptoms and might have been exposed to infection, for example due to travelling, are encouraged to contact health authorities by calling the number 1700 and get instructions. Those who have been in close contact with individuals that have a confirmed or possible infection will need to go into quarantine, as will those who have recently traveled to areas defined as risk areas.

Bestu kveðjur / best regards,
Skólastjórn