Vinna hafin við viðbyggingu við sérdeildina Ösp

Vinna hafin við viðbyggingu.
Vinna hafin við viðbyggingu.

Fyrir skömmu var hafist handa við nýja viðbyggingu við sérdeildina Ösp við Njarðvíkurskóla. Viðbyggingin er um 282m2 sem mun breyta miklu í starfsemi deildarinnar. Einnig verða gerðar endurbætur að innan á núverandi byggingu sem er 336 m² að stærð. Stefnt er á að viðbyggingin klár eigi síðar en 1. október 2019.

 

Sérdeildin Ösp var stofnuð árið 2002 þegar skólaúrræði vantaði fyrir nemendur sem gátu ekki nýtt sér almenna bekkjarkennslu. Deildin er hugsuð fyrir nemendur í 1.-10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar sem þurfa á slíku skólaúrræði að halda.

 

Allir nemendur Asparinnar tilheyra sínum umsjónarbekk í Njarðvíkurskóla og vinna starfsmenn að því að hafa velferð nemenda í fyrirrúmi í skipulagningu á náminu þeirra. Í Öspinni er unnið eftir einstaklingsáætlunum og er meðal annars lögð áhersla á tjáningu, lestur, stærðfræði, skynnám, félagsfærni og athafnir daglegs lífs. Nemendur Asparinnar sækja sérgreinatíma og aðra kennslustundir með sínum umsjónarbekk í Njarðvíkurskóla eins og kostur er á. Þegar skóla lýkur er boðið upp á frístundarúræði fyrir nemendur Asparinnar.

 

Deildarstjóri er Kristín Blöndal og auk hennar starfa við deildina grunnskólakennarar, þroskaþjálfar, félagsliðar og stuðningsfulltrúa.