1. bekkur verða Verndarar Jólatrésins

Nemendur í 1. bekk Njarðvíkurskóla
Nemendur í 1. bekk Njarðvíkurskóla

Nemendur í 1. bekk Njarðvíkurskóla gróðursettu þann 6. nóvember 2026 fallegt Sitkagreni í skrúðgarðinum í Njarðvík og hafa um leið tekið að sér það hlutverk að verða Verndarar þess.

Með þessu eru nemendur að taka þátt í skógrækt ásamt því að fræðast um trén og nánasta umhverfi þeirra. Nemendurnir fengu sérstakan stað fyrir tréð og ætla að fylgjast með því vaxa og dafna á meðan þau stunda nám við skólann næstu tíu árin. Þessi gróðursetning er líka samstarfsverkefni við Yrkju. En í stað þess að nota þá upphæð sem við fáum frá Yrkjusjóði til þess að planta mörgum litlum plöntum þá ákváðum við núna að gróðursetja stærri plöntu fyrir andvirði Yrkjusjóðsins.

Stefnt er að því að fara ár hvert í desember og dansa í kringum tréð og eiga jólalega stund.
Gróðursetningin er í samstarfi við Frímúrararegluna Sindra, en meðlimir reglunnar hafa tekið að sér að græða upp og endurnýja plöntur og umhverfi skrúðgarðsins.

Nemendur fengu jafnframt heim með sér skjal um að þau ætli að taka að sér að vera Verndara Jólatrésins. Skjalið fylla þau út heima með foreldrum og skila svo aftur í skólann. Þetta skjal verður síðan geymt og afhent aftur til nemendanna við útskrift í 10. bekk.