Það er mikið að gerast í umhverfismennt í Njarðvíkurskóla þessa dagana.
Nemendur í þriðja bekk eru núna að koma af fullum krafti inn í umhverfismálin og eru þau búin að taka að sér að vernda skrúðgarðinn.
Þau hafa verið einstaklega dugleg við það að taka rusl og aðra óskilamuni eins og reiðhjól og fleira sem ekki á að vera í skrúðgarðinum. Í framhaldinu af þeirri vinnu þá ætla þau að taka að sér að vera verndarar skrúðgarðsins.
Núna er Frímúrarareglan Sindri að vinna að því að græða upp og bæta skrúðgarðinn okkar og ætla nemendur 3. bekkjar að leggja þeim lið og verða verndarar garðsins.
Vel gert nemendur og kennarar í 3. bekk.