3. janúar verður skipulagsdagur - nemendur mæta 4. janúar

Njarðvíkurskóli
Njarðvíkurskóli

Ákveðið hefur verið að mánudagurinn 3. janúar verði starfsdagur hjá þeim skólum í Reykjanesbæ sem áttu að hefja skólastarf þann dag. Þetta er gert til að gefa starfsfólki tækifæri til að laga starfsemina að aðstæðum í samfélaginu og gildandi reglugerð. Miðað við hraða á útbreiðslu Covid-19 má búast við að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og tónlistarskóla á komandi dögum, en eins og áður verður reynt að leysa forföll eins og hægt er.

Nemendur Njarðvíkurskóla mæta því í skólann á nýju ári þriðjudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.

Með því að smella hérna er hægt að sjá bréf frá bæjarstjóra og fræðslustjóra Reykjanesbæjar vegna upphaf skólastarfs á nýju ári.