Aðventustund í Ytri-Njarðvíkurkirkju

Aðventustund
Aðventustund

Miðvikudaginn 10. desember fóru nemendur í Njarðvíkurskóla aðventustund í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Í kirkjunni tóku á móti þeim sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, sr. Helga Kolbeinsdóttir, Rafn Hlíðkvist organisti, Svandís Gylfadóttir og Jónína Margrét Hermannsdóttir. Í heimsókninni voru sungin jólalög og flutt jólasaga sem skapaði hátíðlega og notalega stemningu.

Heimsóknin var ánægjuleg og nemendur til fyrirmyndar í allri sinni framkomu.

Við viljum færa starfsfólki Ytri-Njarðvíkurkirkju bestu þakkir fyrir góðar og hlýjar móttökur.