Njarðvíkurskóli
Árshátíð Njarðvíkurskóla verður haldin föstudaginn 20. mars 2026.
Nemendur mæta kl. 10:30 í heimastofur og fara þaðan saman með umsjónarkennara sínum yfir í íþróttahúsið. Sumir nemendur gegna sérstökum hlutverkum og mæta þeir samkvæmt fyrirmælum frá sínum kennara. Frístundaheimili skólans og í Ösp eru lokuð þennan dag.
Hátíðardagskrá hefst kl. 11:00 í íþróttahúsinu við Njarðvíkurskóla. Þar verða frátekin sæti fyrir hvern árgang á gólfinu en gestir fá sæti í stúkunni og mögulega á öftustu röðum gólfsins. Íþróttahúsið opnar fyrir gesti kl. 10:30.
Eins og hefð er fyrir verður árshátíðargestum boðið upp á kaffiveitingar í skólanum að dagskrá lokinni. Í boði verða skúffukaka og drykkir en í ár er skúffukakan í boði foreldrafélags Njarðvíkurskóla. Kaffiveitingar verða í heimastofum. Forráðamenn nemenda sem eiga heimastofurnar 209, 210, 211, 309, 310 og 311 ganga inn um inngang yngri barna við Norðurstíg en aðrir forráðamenn ganga inn um aðalinngang. Kaffiveitingar verða einnig í boði í Brekku fyrir nemendur og forráðamenn í 2. bekk.
Athugið að nemendur koma ekki með síma á árshátíðina þar sem notkun síma og myndataka nemenda er ekki leyfð.
Við hvetjum forráðamenn og aðra fjölskyldumeðlimi til að mæta og taka þátt í þessum skemmtilega degi. Gert er ráð fyrir að dagskrá í íþróttahúsinu taki um 60 mínútur og eftir það eru nemendur í umsjá forráðamanna.
Við minnum alla nemendur á að mæta stundvíslega og snyrtilega klædd.