Árshátíð Njarðvíkurskóla 2026

Árshátíð skólans fór fram við mikla gleði og glæsibrag föstudaginn 20. mars og var þemað í ár „Tímavélin“. Nemendur ferðuðust þar í gegnum tímann, þar sem hver árgangur valdi sér sinn áratug og setti upp skemmtilegt atriði í anda hans. Útkoman var fjölbreytt og litrík dagskrá sem frábæra einstaka stemningu.

Íþróttahúsinu hafði verið breytt í glæsilegt leikhús þar sem ljós, hljóð og sviðsmynd sköpuðu skemmtilega stemmningu. Nemendur í 9. og 10. bekk gegndu lykilhlutverkum í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar og sáu meðal annars um sviðsstjórn, ljós, hljóð og aðstoð á bak við tjöldin. Framlag þeirra skipti sköpum og stóðu þau sig með mikilli prýði.

Það var augljóst að mikil vinna og metnaður lá að baki öllum atriðum og nemendur sýndu bæði sköpunargleði og samvinnu. Stemningin í salnum var frábær og var gaman að sjá hvað allir virtust skemmta sér vel.

Að lokinni sýningu var boðið upp á kökur og drykki í skólanum þar sem gestir og nemendur gátu átt notalega stund saman að lokinni árshátíð.

Það er óhætt að segja að árshátíðin hafi tekist einstaklega vel og eru margir farnir að hlakka til árshátíðar næsta árs.