Elín Arnardóttir, Ása Árnadóttir og Ólöf Elín Rafnsdóttir
Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar voru afhent í Bíósal Duus við hátíðlega athöfn 4. júní 2025. Alls bárust 12 tilnefningar frá leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar og voru verkefnin fjölbreytt að vanda.
Stapaskóli hlaut Hvatningarverðlaunin í ár og Heiðarskóli og Háaleitisskóli fengu sérstaka viðurkenningu.
Ása Árnadóttir, Elín Arnardóttir og Ólöf Elín Rafnsdóttir fengu tilnefningu Njarðvíkurskóla í ár fyrir framúrskarandi teymisvinnu og faglegt starf í Njarðvíkurskóla.
Ása, Elín og Ólöf Elín hafa með samheldnu og faglegu samstarfi skapað öruggt og hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur í 2. bekk þar sem nemendum líður vel. Nemendur fá tækifæri til að rækta hæfileika sína og blómstra með opnum hug og gleði í hjarta.
Ása, Elín og Ólöf mynda samstillt og traust teymi þar sem virðing, samvinna og faglegur metnaður eru leiðarljós í öllu starfi. Með opnum og jákvæðum samskiptum hefur þeim tekist að byggja upp sterk og traust tengsl innan nemendahópa, skapa jákvæðan bekkjarbrag og tryggja að hver og einn nemandi fái að njóta sín á eigin forsendum. Þær hafa jafnframt lagt áherslu á að byggja upp kennslurými þar sem fjölbreytileiki er nýttur sem styrkur.
Kennslurými þeirra er til fyrirmyndar þar sem það er snyrtilegt, skipulagt og hlýlegt og endurspeglar þann sköpunarkraft og vilja til umbóta sem einkenna störf þeirra. Þær hafa unnið markvisst að þróun kennsluhátta, fjölbreyttu námsmati og tekið virkan þátt í metnaðarfullum verkefnum á borð við Leikgleði, sem gengur út á að efla hugtakaskilning, orðaforða, hlustunarskilning og frásagnarhæfni nemenda. Þær nýta leiðsagnarnám mjög vel í kennslu. Markmiðin eru skýr, nemendur fá reglulega uppbyggjandi endurgjöf og áhersla er lögð á sjálfsmat og sjálfstæði í námi. Þær skapa þannig námsumhverfi sem styður við vaxandi hugarfar, stöðugar framfarir og virka þátttöku nemenda. Þær hafa verið með nemendastýrð viðtöl þar sem nemendur leiða samtal við forráðamenn. Með því er sjálfstæði og rödd nemenda virt og styrkt sem stuðlar að auknum áhrifum þeirra á eigið nám.
Eitt af stærstu markmiðum Njarðvíkurskóla á skólaárinu er traust og virkt samstarf heimilis og skóla. Foreldrasamskipti eru til fyrirmyndar hjá teyminu. Hlýtt, reglulegt og faglegt samstarf þeirra við heimilin hefur stuðlað að traustu og virku samstarfi við forráðamenn.
Þær eru hugmyndaríkar, lausnamiðaðar og skipulagðar og hafa með sínum störfum og framferði öðlast virðingu innan skólans. Með vinnubrögðum sínum eru þær dýrmæt fyrirmynd starfsfólks og stuðla að menningu þar sem faglegt menntasamfélag þrífst.
Það er óhætt að segja að það starf sem Ása, Elín og Ólöf vinna í Njarðvíkurskóla endurspegli með skýrum hætti þá fagmennsku, elju og hugsjón sem er til fyrirmyndar fyrir skólasamfélag í Reykjanesbæ. Þær mynda teymi sem er til fyrirmyndar, þar sem samvinna, gagnkvæm virðing og metnaður eru í fyrirrúmi.
Sterkt teymisstarf þeirra hefur skilað sér í öflugu og hvetjandi námsumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Með markvissum og skapandi aðferðum stuðla þær að auknu sjálfstæði nemenda, betri námsárangri og dýpri tengslum heimilis og skóla.
Þær hafa jafnframt byggt upp kennslurými sem lýsir vel þeirri faglegu hugsun sem þær leggja í sitt starf þar sem skipulag, hlýja og sköpunarkraftur eru allsráðandi sem hefur jákvæð áhrif líðan og þátttöku nemenda.
Foreldrasamskipti eru jafnframt til fyrirmyndar og í takt við stefnu skólans um virkt samstarf við heimilin. Samskipti þeirra við forráðamenn eru regluleg, fagleg og hlý sem styrkir tengslin og eykur traust.
Þær eru lausnamiðaðar, skipulagðar, sýna frumkvæði og eru virkir þátttakendur í að þróa skólastarfið til hins betra. Þær eru dýrmætar fyrirmyndir í skólasamfélaginu og mikilvægar stoðir í þeirri menningu sem við viljum sjá eflast í skólum Reykjanesbæjar.
Ása, Elín og Ólöf sýna í verki að teymisvinna sem byggir á trausti, gagnkvæmri virðingu og skýrum markmiðum getur skilað góðum árangri.