Þriðjudaginn 10. nóvember var baráttudagur gegn einelti í Njarðvíkurskóla. Dagurinn er haldinn árlega 8. nóvember en þar sem hann bar upp á sunnudag í ár var ákveðið að tileinka þriðjudeginum baráttunni gegn einelti.
Nemendur og starfsfólk voru hvött til að klæðast grænu í tilefni dagsins, en grænn er litur verndarans í eineltishringnum. Með því vildum við minna á mikilvægi þess að standa með öðrum, sýna vinsemd og láta sig líðan annarra varða.
Í kennslustundum var unnið með fjölbreytt verkefni þar sem nemendur fengu fræðslu um einelti og mikilvægi góðra samskipta, vináttu og gagnkvæmrar virðingar.
Hápunktur dagsins var síðan þegar Páll Óskar heimsótti skólann og hitti alla nemendur. Hann ræddi við nemendur um mikilvæg málefni tengd einelti og samskiptum og tók að sjálfsögðu lagið við mikinn fögnuð. Meðal laga sem hann flutti var Eitt af blómunum, sem hann samdi ásamt Benna Hemm Hemm og á einstaklega vel við á degi sem þessum.
Dagurinn var bæði skemmtilegur og lærdómsríkur og minnti okkur öll á mikilvægi þess að standa saman gegn einelti. Við þökkum Páli Óskari kærlega fyrir frábæra heimsókn og fyrir að leggja sitt af mörkum til að gera daginn eftirminnilegan.