Miðvikudaginn 25. nóvember var dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Njarðvíkurskóla. Dagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert í tilefni af fæðingardegi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember.
Að þessu sinni fór hátíðin fram í Stapa í Hljómahöll í stað salar skólans í tilefni af því að Njarðvíkurskóli fagnar 85 ára starfsafmæli á þessu skólaári.
Nemendur höfðu undirbúið fjölbreytt og skemmtileg atriði sem þeir fluttu á sviðinu við góðar undirtektir. Kynnar hátíðarinnar voru Rósa Kristín, formaður nemendaráðs, og Grétar Atli, varaformaður nemendaráðs, sem stýrðu dagskránni af mikilli prýði.
Berglind Elva og Hrafnhildur Embla, nemendur í 8. bekk, lásu æviágrip Jónasar Hallgrímssonar ásamt ljóðum eftir skáldið. Þá fluttu Anton Hardonk úr 7. bekk og Sóllilja Valsdóttir úr 4. bekk glæsileg tónlistaratriði, en þau stunda bæði nám við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Hátíðin tókst einstaklega vel og var ánægjulegt að sjá hversu vel nemendur stóðu sig á sviðinu. Dagskráin var fallegur vitnisburður um sköpunargleði og hæfileika nemenda og um leið góð áminning um mikilvægi þess að rækta íslenska tungu og menningu.
Við þökkum öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar kærlega fyrir þeirra framlag.