Marta Caber tilnefnd til Hvatningarverðlauna mennataráðs Reykjanesbæjar

6. júní síðastliðin voru Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar afhent í Bergi við hátíðlega athöfn. Marta Caber starfsmaður í Ösp, sérhæfðu námsúræði í Njarðvíkurskóla, var tilnefnd í ár fyrir öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp.
 
Hver leik- og grunnskóli í Reykjanesbæ átti að tilnefna verkefni sem þótti skara fram úr í þeirra starfi og voru 15 verkefni tilnefnd. Það voru síðan 3 verkefni sem voru sérstaklega viðurkennd og var tilnefning Mörtu eitt af þeim þremur, sem er einstaklega góður árangur. 
 
Marta Caber hefur frá árinu 2023 leitt frístundaheimilið Ösp af mikilli fagmennsku og metnaði. Undir hennar stjórn hefur starfsemin orðið enn markvissari og fjölbreyttari með skýra áherslu á þátttöku og vellíðan nemenda í Ösp sem eru með ríkar stuðningsþarfir. Hún hefur innleitt skapandi og sjónrænt skipulag, eflt samstarf við meðal annars skátafélagið Heiðarbúa, bókasafn og heimilisfræði og þróað verkefnið Asparkot fyrir eldri nemendur. Marta hefur jafnframt nýtt nám sitt í tómstunda- og félagsmálafræði markvisst til að efla starfið. Foreldrar og starfsfólk hafa lýst mikilli ánægju með hennar framlag og hefur hún haft afar jákvæð áhrif á bæði frístunda- og skólastarf.
 
Mörtu er óskað innilega til hamingju með þessa tilnefningu og það frábæra starf sem hún hefur unnið ásamt öðru starfsfólki í frístundaheimilinu í Ösp.