Formannsskipti hjá nemendafélagi Njarðvíkurskóla

Þorgerður Tinna, Kristinn Einar, Karen Ósk og Vilberg Eldon.
Þorgerður Tinna, Kristinn Einar, Karen Ósk og Vilberg Eldon.

Í lok skólaárs áttu sér stað formannsskipti hjá nemendafélagi Njarðvíkurskóla.

Fráfarandi formaður Kristinn Einar Ingvason afhendi þá verðandi formanni nemandafélags Njarðvíkurskóla lykilinn að skólanum. Nýr formaður verður Karen Ósk Lúthersdóttir og varaformaður nemendafélagsins verður Vilberg Eldon Logason sem tekur við af fráfarandi varaformanni Þorgerði Tinnu Kristinsdóttur.

Við þökkum Kristni Einari og Þorgerði Tinnu fyrir gott starf í vetur og óskum Karen Ósk og Vilbergi Eldon velfarnaðar á nýju skólaári 2025-2026.