Vilberg Eldon, Grétar Atli, Rósa Kristín og Karen Ósk.
Í lok skólaárs fóru fram formannsskipti hjá nemendafélagi Njarðvíkurskóla.
Nemendur í 7.–9. bekk ásamt starfsfólki skólans kusu á milli þeirra nemenda sem buðu sig fram til formanns. Sá aðili sem hlaut flest atkvæði var kjörinn formaður en sá sem hlaut næstflest atkvæði var kjörinn varaformaður.
Þau sem voru kosin voru Rósa Kristín Jónsdóttir formaður og Grétar Atli Sigurbjörnsson varaformaður.
Á sumarhátíð Njarðvíkurskóla afhentu fráfarandi formaður Karen Ósk Lúthersdóttir og fráfarandi varaformaður Vilberg Eldon Logason nýjum formanni og varaformanni nemendafélagsins lykilinn að skólanum fyrir skólaárið 2026–2027.
Við þökkum Karen Ósk og Vilbergi Eldon fyrir gott starf í vetur og óskum Rósu Kristínu og Grétari Atla velfarnaðar í störfum sínum á komandi skólaári.