Helena Maria, Inga Lóa, Helga Margrét og Guðbjörg.
Helga Margrét Steinarsdóttir nemandi í 7. KE hlaut í marsmánuði verðlaun frá Lionsklúbbnum Freyju fyrir þátttöku sína í Friðarveggspjaldakeppni Alþjóðahreyfingar Lions á Íslandi skólaárið 2025–2026.
Í keppninni unnu nemendur veggspjöld út frá þemanu „Allir sem einn“. Verk Helgu vakti sérstaka athygli en í því sýnir hún á áhrifaríkan hátt hvernig íþróttir og félagsstörf geta sameinað fólk um allan heim – allir sem einn.
Verðlaunin voru afhent í kennslustofu Helgu þar sem fulltrúar Lionsklúbbsins Freyju, Inga Lóa Steinarsdóttir og Guðbjörg Þórðardóttir, mættu ásamt Helenu Mariu myndlistakennara.
Við óskum Helgu Margréti innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.