Göngum í skólann

Verkefnið Göngum í skólann verður sett í nítjánda sinn þann 3. september n.k. 

Munum við í Njarðvíkurskóla taka þátt líkt og undanfarin ár, en verkefninu lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 1. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.    

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup,  línuskautar, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.  

Njarðvíkurskóli er heilsueflandi grunnskóli og með þátttöku okkar í verkefninu Göngum í skólann viljum við hvetja bæði nemendur og starfsfólk til að nýta tækifærið og fara ferða sinna sem oftast gangandi eða hjólandi í skólann.  Við leggjum áherslu á öryggi nemenda í umferðinni og mikilvægi þess að nota hjálma þegar ferðast er um á hjólum. 

Verum opin og jákvæð fyrir verkefninu og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barna okkar á leiðinni í skólann. 

Nokkur heilræði fyrir foreldra og nemendur í skólabyrjun:

Æfum leiðina í og úr skóla saman
Veljum öruggustu leiðina í skólann – ekki stystu
Leggjum tímanlega af stað, ekki flýta sér
Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósastýringar
Verum sýnileg, notum endurskinsmerki
Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir
Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla


Við viljum einnig benda forráðamönnum á áhugaverðar síður sem tengjast verkefninu og umferðaröryggi.
www.gongumiskolann.is.
https://umferd.is/grunnskoli/

Öruggasta leiðin í skólann (Úti í umferðinni)
https://www.youtube.com/watch?v=qFYOGfDt0_g&t=184s