Það var heldur betur líf og fjör í Njarðvíkurskóla föstudaginn 30. október þegar hrekkjavakan var haldin hátíðleg.
Skólinn fylltist af draugum, nornum, skrímslum og alls kyns skemmtilegum verum þegar nemendur og starfsfólk mættu í fjölbreyttum og skrautlegum búningum.
Fyrstu þrjár kennslustundir dagsins fóru fram með hefðbundnum hætti en að þeim loknum tók við skemmtileg hrekkjavökudagskrá. Nemendur gátu valið á milli fjölbreyttra stöðva þar sem gleði, fjör og góð stemning voru í fyrirrúmi.
Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og brosin leyndu sér ekki hjá nemendum og starfsfólki. Myndirnar sem fylgja fréttinni segja meira en mörg orð og sýna vel þá frábæru stemningu sem ríkti í skólanum þennan dag.