Hrekkjavökuhátíð
Föstudaginn 30. október verður haldin Hrekkjavökuhátíð í Njarðvíkurskóla. Þetta er uppbrotsdagur samkvæmt skóladagatali og verður hluti af deginum helgaður hrekkjavökunni.
Við ætlum að búa til hrekkjavökustemningu í skólanum þar sem nemendur taka þátt í fjölbreyttum viðburðum og stöðvum.
Á meðal þess sem í boði verður eru, skapandi og dularfullar stöðvar í kennslustofum, hrekkjavökuleikir og þrautir, hrekkjavökubakarí, draugalegt diskó, söngur, tónlist og ýmis hrekkjavökuverkefni við hæfi allra aldursstiga.
Kennsla fer fram samkvæmt stundaskrá frá kl. 8:15 til 10:35. Skipulögð hrekkjavökudagskrá verður frá kl. 10:35 til 13:15. Frímínútur og hádegismatur verða á hefðbundnum tímum.
Frístundaheimili verður með hefðbundnu sniði.
Nemendur fara ekki í sund þennan dag en íþróttir verða samkvæmt stundaskrá til kl. 10:35 og verður tekið tillit til búninga í þeirri kennslu.
Við hvetjum nemendur til að mæta í búningum eða einhverju sem tengist hrekkjavöku. Salurinn í skólanum verður skreyttur í hrekkjavökuanda og munu nemendur taka þátt í skapandi verkefnum, leikjum, söng og dansi.
Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri þar sem þeir fara út í frímínútur líkt og aðra daga.
Við hlökkum til dagsins þar sem nemendur og starfsfólk mun njóta saman hrekkjavökustemningar í skólanum.