Leikgleði í Stapa

Lokahátíð verkefnisins Leikgleði sem ætlað er að efla leik og sköpun í námi yngstu nemenda fór fram með glæsibrag í Stapa fimmtudaginn 15. maí. Þar komu saman nemendur í 1.–2. bekk allra grunnskóla Reykjanesbæjar og sýndu fjölbreytt atriði sem endurspegluðu markmið og áherslur verkefnisins.

Nemendur úr Njarðvíkurskóla fluttu leikþátt, 1. bekkur um virðingu, ábyrgð og vinsemd og 2. bekkur var með leikþátt sem var unnin út frá bókinni Tröllamatur og sungu lagið Vinur minn.
Að lokum sameinaðist allur hópurinn í söng á laginu Dropalagið.

Nemendur voru til fyrirmyndar og tókst hátíðin afar vel.