Litla upplestarhátíðin í Njarðvíkurskóla

Litla upplestrarhátíðin fór fram í Njarðvíkurskóla þann 30. apríl síðastliðinn. Þar stigu nemendur í 4. bekk á svið og sýndu afrakstur æfinga vetrarins í upplestri. Þau hafa unnið markvisst að undirbúningi undir leiðsögn umsjónarkennara sinna, Örnu Lindar Kristinsdóttur og Júlíu Scheving Steindórsdóttur.

Foreldrar og aðstandendur mættu og nutu þess að hlýða á vandaðan og skemmtilegan upplestur nemenda. Í upphafi hátíðar lásu Berglind Elva Rafnsdóttir og Hrafnhildur Embla Ægisdóttir, sem stóðu uppi sem sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk fyrr í vetur. Þær settu skemmtilegan og hvetjandi tón fyrir dagskrána.

Hátíðin tókst afar vel og ljóst að nemendur höfðu lagt mikla vinnu og metnað í verkefnið.