Litla upplestrarhátíðin í 4. bekk var haldin með glæsibrag í dag í Njarðvíkurskóla þar sem nemendur í 4. bekk sýndu færni sína í upplestri. Viðburðurinn fór fram á sal skólans þar sem nemendur 3. bekkjar voru gestir, sem hluti af undirbúningi þeirra fyrir næsta skólaár, ásamt foreldrum í 4. bekk sem var boðið að koma og hlýða á flutning barna sinna.
Kennararnir Anika Rós, Guðlaug og Hera héldu utan um hátíðina og voru æfingar búnar að fara fram síðustu vikur og mánuði. Það var sérlega ánægjulegt að sjá hversu vel nemendur höfðu undirbúið sig og hversu mikinn metnað þau lögðu í flutning sinn.
Ásamt upplestri nemenda var tónlistaratriði sem Kastíel Hrafn nemandi í 4. bekk flutti lagið Harry Potter.
Litla upplestrarhátíðin er mikilvægur viðburður í skólastarfinu og stuðlar að auknum áhuga nemenda á lestri og tjáningu og er góður undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem er haldin árlega í 7. bekk.