Nemendur í 10. bekk
Nemendur í Njarðvíkurskóla í 4.-10. bekk hafa síðustu 3 vikur þreytt stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði. Prófin eru tekin á Chromebook tölvur og eru niðurstöður væntanlegar um miðjan maí.
Nemendur hafa yfir höfuð staðið sig frábærlega, sýnt þrautseigju og dugnað auk þess að vera jákvæð fyrir prófatökunni.
Lögboðið er að leggja prófin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk en ákveðið var í grunnskólum Reykjanesbæjar að allir nemendur í 4.-10. bekk sem fylgja námskrá árgangs taki prófin svo hægt sé að nota niðurstöður prófanna til skipulagningar kennslu í samræmi við stöðu nemenda og við mat á árangri kennslunnar. Tilgangur stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði er að draga upp sem nákvæmasta mynd af stöðu nemanda og framvindu í námi, hvar áskoranir og styrkleikar liggja svo hægt sé að mæta námslegum þörfum nemenda á árangursríkan hátt.