Stefania og Hjördís Lilja
Nýsköpunarkeppni grunnskóla fyrir 5.-7. bekk fer fram ár hvert. Þar fá nemendur tækifæri til að senda inn eigin hugmyndir.
Í ár komust alls 25 hugmyndir áfram af 502 innsendum og voru þar á meðal tveir nemendur Njarðvíkurskóla sem komust áfram með hugmyndina sína „Bókin ykkar“ sem er bók ætluð blindum þar sem blindaletur kemur upp um leið og hægt er að hlusta.
Þær Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska úr 5. GS komust áfram í úrslit sem fara fram núna 28.–30. maí í Háskóla Íslands. Þar er unnið áfram með börnunum í því að þróa hugmyndir sínar enn frekar
Við erum afar stolt af okkar nemendum í Njarðvíkurskóla og óskum þeim innilega til hamingju og góðs gengis í úrslitunum.