Öskudagur í Njarðvíkurskóla

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Njarðvíkurskóli í dag 18. febrúar. Nemendur og starfsfólk mættu í fjölbreyttum og litríkum búningum og settu skemmtilegan svip á skólastarfið.

Að venju var dagurinn brotinn upp með fjölbreyttum og skemmtilegum þrautum bæði í skólanum og í íþróttahúsinu. Nemendur tóku virkan þátt, sýndu samvinnu og gleði og leystu verkefni af miklum áhuga. Þá var einnig boðið upp á draugahús sem vakti mikla lukku meðal nemenda. Í lok dags fengu allir pizzu að borða og fóru glöð heim í lok dags.

Öskudagur er skertur skóladagur í skólanum og voru nemendur í skólanum frá kl. 8:15–11:20 og að því loknu lauk skóladegi og frístund tók við hjá þeim sem eru skráðir í frístund.