Páskafrí 2026

Páskafrí í skólanum hefst mánudaginn 30. mars. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl.

Við óskum öllum nemendum og forráðamönnum gleðilegra páska og vonum að þið njótið vel yfir hátíðarnar. Við hlökkum til að taka á móti öllum endurnærðum og tilbúnum í lokasprett skólaársins.