Njarðvíkurskóli
Fimmtudaginn 29. janúar er samtalsdagur í Njarðvíkurskóla.
Forráðamenn bóka viðtal við umsjónarkennara í gegnum Mentor. Opnað var fyrir bókanir 20. janúar kl. 10:00 og geta forráðamenn þá bókað sín viðtöl.
Þeir forráðamenn sem eru með túlk í viðtalinu fá úthlutað tímum frá umsjónarkennurum og fá tölvupóst á næstu dögum með tímasetningunum.
Viðtöl fara fram í heimastofum nemenda.
Þeir forráðamenn sem óska eftir viðtali við fag-, list- og verkgreinakennara, sem einnig eru til viðtals þennan dag, hafa samband við skrifstofustjóra skólans og bóka þau viðtöl fyrir samtalsdaginn. Hægt er að hringja í síma 420-3000 eða senda póst á njardvikurskoli@njardvikurskoli.is.
Óski forráðamenn eftir að hafa samtalið á TEAMS þá þarf að senda póst á umsjónarkennara og óska eftir slíku viðtali en mikilvægt er þó að nemandinn sé einnig í viðtalinu.
Nemendur eiga að mæta með forráðamönnum sínum í viðtalið.