Setning Ljósanætur í Njarðvíkurskóla

Grétar Atli og Rósa Kristín
Grétar Atli og Rósa Kristín

Ljósanótt var formlega sett í dag fimmtudaginn 3. september og var margt um að vera þegar nemendur og starfsfólk skólans komu saman til að fagna upphafi hátíðarinnar.

Dagurinn hófst í Njarðvíkurskóla með því að formaður og varaformaður nemendaráðs skólans, Rósa Kristín Jónsdóttir og Grétar Atli Sigurbjörnsson, drógu Ljósanæturfánann að húni við skólann.

Að því loknu héldu nemendur í 3., 7. og 10. bekk í skrúðgarðinn þar sem þeir komu saman með jafnöldrum sínum úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar, ásamt elsta árgangi leikskóla bæjarins.

Í skrúðgarðinum var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Bæjarstjóri flutti ávarp, Ljósanæturfáninn var dreginn að húni og Páll Óskar steig á svið og skemmti viðstöddum auk þess sem fleira skemmtilegt var á dagskrá.

Eftir hádegi hélt síðan nemendaráð skólans skemmtilegt Ljósanæturpartý þar sem allir nemendur skólans komu saman og dönsuðu undir stjórn þeirra fyrir framan skólann ásamt því að syngja og dansa kónga og náði röðin langt inn í skrúðgarðinn fyrir neðan skólann.

Auk þessarar dagskrár í dag 3. september hefur margt annað verið í gangi fyrr í vikunni. Meðal annars fengu allir nemendur í 8.-10. bekk heimsókn frá Samfélagslöggunni og fulltrúum í Fjörheimum þar sem þau ræddu saman um komandi daga í kringum Ljósanótt.

Við óskum öllum gleðilegrar Ljósanætur