Sexan, sigur í stuttmyndasamkeppni

Karen Ösp kennari, Sóldís, Elísa, Viktoría, Helena, Arnór og Andrés, á myndina vantar Karen Gígju.
Karen Ösp kennari, Sóldís, Elísa, Viktoría, Helena, Arnór og Andrés, á myndina vantar Karen Gígju.

Nemendur í 7. bekk í Njarðvíkurskóla tóku þátt í stuttmyndasamkeppninni Sexan fyrr í vetur. Það var Neyðarlínan, 112, sem hélt utan um keppnina ásamt ótal samstarfsaðilum. Lesa má um fyrirkomulag keppninnar á www.112.is/sexan

Fyrirkomulag Sexunnar var þannig að þátttakendur fengu fræðslu í skólanum og fengu svo tækifæri til að búa til og skila inn tilbúinni stuttmynd, sem mátti vera að hámarki þrjár mínútur að lengd. Viðfangsefni keppninnar í ár voru fjórar birtingarmyndir stafræns ofbeldis, samþykki, nektarmynd, tæling eða slagsmál ungmenna.

Nemendur skiptu sér síðan í hópa og voru útbúin sex myndbönd í skólanum og þrjú myndbönd voru síðan send í lokakeppnina sjálfa sem var haldin á landsvísu.

Það var svo eitt myndband úr Njarðvíkurskóla sem vann keppnina sjálfa og komu fulltrúar frá samstarfsaðilum Sexunnar, sem voru samfélagslögreglur af Suðurnesjum, og tilkynntu þeim að sigurvegarar keppninnar kæmu úr Njarðvíkurskóla.

Sigurliðið sjálft fór síðan á verðlaunahátíð sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sigurlið Njarðvíkurskóla var skipað þeim Andrési Sigurði, Arnóri Darri, Elísu Guðrúnu, Helenu Rós, Karen Gígju, Sóldísi Evu og Viktoríu Sól og var það Karen Ösp Randversdóttir umsjónarkennari úr 7. bekk sem hélt utan um keppnina og framkvæmdina hér í skólanum.

Hér með fréttinni má síðan sjá myndir af því þegar samfélagslögreglurnar komu og tilkynntu sigurvegarana og þegar sigurhópurinn sjálfur fór að taka á móti sínum verðlaunum ásamt því er hér slóð inn á sigurmyndbandið sjálft: Sexan 2025 - 1.sæti: Áhrif eineltis Njarðvíkurskóli