Nemendur í skíðavali Njarðvíkurskóla úr 8.–10. bekk fóru fimmtudaginn 16. apríl í skíðaferð í Bláfjöll sem heppnaðist afar vel í alla staði. Veðrið var fínt og aðstæður ágætur sem gerði ferðina bæði ánægjulega og lærdómsríka.
Margir nemendur voru að stíga sín fyrstu skref á skíðum en sýndu ótrúlega þrautseigju og dugnað við að takast á við nýjar áskoranir. Það var greinilegt að framfarirnar voru miklar yfir daginn og gaman að sjá sjálfstraustið aukast jafnt og þétt.
Í ferðinni voru íþróttakennararnir Heiðrún Rós, Ásgerður Bjarklind og Þórir Rafn sem leiðbeindu nemendum og sáu til þess að allt færi vel fram. Ferðin tókst einstaklega vel og skilur eftir góðar minningar hjá bæði nemendum og kennurum.