Skólabyrjun grunnskóla í Reykjanesbæ

Njarðvíkurskóli
Njarðvíkurskóli

Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. 301 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín fyrstu skref inn í grunnskólana okkar. 235 af þeim hafa mætt í sumarfrístund og fengið tækifæri til þess að kynnast nýjum skólafélögum og aðlagast nýjum aðstæðum í skólanum sínum.

Þegar þessi frétt er skrifuð eru nemendur í grunnskólunum okkar 2757 sem er sami fjöldi og var í skólabyrjun fyrir ári síðan.

Hægt er að nálgast skóladagatal hvers skóla inn á heimasíðum þeirra. Vert er að benda á að nokkra þætti sem eru sameiginlegir í öllum skólum:

  • 3. september – Setning Ljósanætur
  • 23. og 26. október – Vetrarfrí
  • 18. desember – Jólahátíð og jólafrí nemenda hefst að henni lokinni
  • 11. og 12. febrúar – Vetrarfrí
  • 30. apríl – Baun hefst
  • 10. júní – Skólaslit

Nýtt námsumsjónarkerfi, Námfús, verður prófað í Akurskóla, Háaleitisskóla, Heiðarskóla, Myllubakkaskóla, Njarðvíkurskóla og Stapaskóla í upphafi skólaárs. Holtaskóli styðst áfram við Mentor kerfið að sinni. Markmiðið með innleiðingu á Námfús er að nemendur, kennarar og foreldrar fái notendavænt viðmót sem gefi betri yfirsýn yfir nám, verkefni og framvindu nemenda. Kerfið styður einnig við ýmsa þætti í starfi skólanna ásamt því að fylgja þróun og nýsköpun í skólastarfinu. Innleiðingin mun krefjast þolinmæði frá skólasamfélaginu þar sem við erum öll að læra á það og þökkum við fyrir hana. Skólarnir munu veita nánari upplýsingar um kerfið og framvinduna í innleiðingu þess.

Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla.

Frétt skrifuð af menntasviði Reykjanesbæjar