Njarðvíkurskóli
Skóladagatal fyrir Njarðvíkurskóla og Ösp skólaárið 2026-2027 hefur verið birt og hægt er að nálgast það hér. Dagatalið hefur verið samþykkt af starfsfólki skólans, skólaráði og hjá menntaráði Reykjanesbæjar.
Útskýring á skóladagatali fyrir skólaárið 2026-2027
Starfstími nemenda í grunnskóla er á hverju skólaári að lágmarki níu mánuðir og eiga skóladagar nemenda að vera eigi færri en 180. Fjöldi skóladaga nemenda er lögbundinn. Skóladagar nemenda eru á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Skipting milli kennsludaga og annarra skóladaga nemenda er á ábyrgð skólastjóra með samþykki frá starfsfólki í Njarðvíkurskóla, skólaráði Njarðvíkurskóla og menntaráði Reykjanesbæjar.
Hérna er útskýring á uppbrotsdögum, skertum skóladögum, starfsdögum og vetrarleyfi:
Uppbrotsdagar eru einstaka skóladagar þar sem stundatöflu nemenda er breytt verulega en upphaf og lok skóladags er því næst þau sömu. Uppbrotsdagar eru nýttir til óhefðbundins skólastarfs. Uppbrotsdagar geta mest orðið tíu dagar á skólaárinu.
Í Njarðvíkurskóla verða sjö uppbrotsdagar á skólaárinu 2026-2027 og eru þeir tilgreindir með fjólubláum lit á skóladagatalinu. Frístundaheimilið í Njarðvíkurskóla eru opið á uppbrotsdögum.
- Uppbrotsdagar á skólaárinu eru: Setning ljósanætur (3. september), hrekkjavaka (30. október), föndurdagur (11. desember), þemadagar og ferðir/sýning (4., 7., 8. og 9. júní).
Skertir skóladagar nemenda teljast ekki til uppbrotsdaga og geta verið tíu talsins. Með skertum skóladögum m.a. átt við skólasetningar- og skólaslitadaga, samtalsdaga og annað sem skólastjóri ákveður í hverjum skóla. Í Njarðvíkurskóla verða tíu skertir skóladagar á skólaárinu 2026-2027 og eru þeir tilgreindir með bláum lit á skóladagatalinu.
- Frístundaheimilið í Njarðvíkurskóla er opið á eftirfarandi skertum skóladögum: Skólasetning (25. ágúst), íþróttadagur (4. september), samtalsdagar (8. október og 27. janúar), skertur nemendadagur (4. janúar), öskudagur (10. febrúar) og vorhátíð (3. júní).
- Frístundaheimilið í Njarðvíkurskóla er lokað á eftirfarandi skertum skóladögum: Jólahátíð (18. desember), árshátíð (16. apríl) og skólaslit (10. júní).
Vetrarleyfi er dagana 23. október, 26. október, 11. febrúar og 12. febrúar. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilið lokað. Vetrarleyfisdagar eru tilgreindir með rauðum lit á skóladagatalinu.
Starfsdagar eru fimm á starfstíma nemenda. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilið lokað. Starfsdagar er tilgreindir með gulum lit á skóladagatalinu.
- Starfsdagar á skólaárinu eru: 29. september, 30. nóvember, 1. desember, 2. desember og 19. janúar.
Við gerð skóladagatala er reynt að dreifa uppbrotsdögum, skertum nemendadögum, vetrarleyfisdögum og starfsdögum á vikudagana yfir skólaárið eins og kostur er.