Skólasetning Njarðvíkurskóla

Njarðvíkurskóli
Njarðvíkurskóli

Skólasetning Njarðvíkurskóla fer fram mánudaginn 25. ágúst. Nemendur mæta ásamt forráðamönnum í heimastofur þar sem umsjónarkennarar verða með skólakynningu. Á skólakynningum verður farið yfir ýmist atriði sem tengist skólastarfi í Njarðvíkurskóla og yfir helstu áherslur í hverjum og einum árgangi. Að kynningum loknum verða nemendur áfram í skólanum með umsjónarkennurum (sjá tímasetningar hér að neðan). Þar verður lögð áhersla á hópefli, tengslamyndun og að styrkja sambönd nemenda við umsjónarkennara og stuðningsfulltrúa. Nemendur í 1.-7. bekk eru hvattir til að taka með sér nesti.

Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp verða opin frá 10:35 til kl. 16:15 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu hjá öllum nemendum þriðjudaginn 26. ágúst kl. 8:15.

Tímasetningar á skólasetningu:

  • Nemendur í 1.-4. bekk mæta kl. 8:15 og verða í skólanum til kl. 10:35.
  • Nemendur í 5.-7. bekk mæta kl. 8:55 og verða í skólanum til kl. 11:15.
  • Nemendur í 8.-10. bekk mæta kl. 9:55 og verða í skólanum til kl. 12:00.
  • Nemendur í Ösp mæta á mismunandi tímasetningum eftir samtal við forráðamenn.
  • Nemendur í Björk mæta á mismunandi tímasetningum eftir samtal við forráðamenn.