Skólaslit Njarðvíkurskóla vor 2025

Útskriftarhópur Njarðvíkurskóla 2025
Útskriftarhópur Njarðvíkurskóla 2025

Skólaslit Njarðvíkurskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans föstudaginn 6. júní hjá nemendum í 1.-10. bekk.

Skólaslit hjá 1.-9. bekk var skipt upp í fjóra hluta: 1., 2. og 3. bekkur, 4., 5. og 6. bekkur, 7., 8. og 9. bekkur og að loum 10. bekkur.
Skólaslitin byrjuðu á sal þar sem Rafn Markús Vilbergsson, skólastjóri ávarpaði nemendur, forráðamenn og starfsfólk. Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið en þetta var 83. starfsár skólans. Að þessu loknu fóru nemendur með sínum umsjónarkennurum í heimastofur og fengu afhentan vitnisburð sinn. Á skólaslitum hjá 1.-3. bekk spilaði Ingunn Ágústa Andradóttir nemandi í 3. bekk á píanó, hjá 4.-6. bekk spilaði Halldór Martin Briansson nemandi í 5. bekk á píanó og hjá 7.-9. bekk spilaði Elin Mia Hardonk nemandi í 8. bekk á selló.

Á skólaslitunum hjá 10. bekk spilaði Þorgerður Tinna Kristinsdóttir nemandi í 10. bekk á klarinett.
Á skólaslitunum í 10. bekk voru fjölmargar viðurkenningar veittar til einstakra nemenda.
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur fyrir einstakar greinar í 10. Bekk. Það eru ýmis félagasamtök í nærsamfélagi skólans sem gáfu verðlaunin og kann Njarðvíkurskóli þeim bestu þakkir fyrir. Eftirtaldir nemendur í 10. bekk fengu viðurkenningu fyrir sinn námsárangur.
- Albert Guðmundsson viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Alexandra Nótt Eysteinsdóttir viðurkenningu fyrir góðan árangur í heimilisfræði
- Almar Orri Jónsson viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Arnar Freyr Bjarkason viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur auk þess að ljúka stúdentsprófi í spænsku á framhaldsskólastigi
- Birta Rós Árnadóttir viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í ensku, samfélagsfræði og myndlist
- Elísa Valsdóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Elísabet María Þórisdóttir háttvísisverðlaun Ásgerðar Þorgeirsdóttur og viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Helga Jara Bjarnadóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Helena Mist Gabríelsdóttir viðurkenningu fyrir stærðfræði á framhaldsskólastigi og almennt góðan námsárangur
- Kara Sif Gunnarsdóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Katrine Johanna Halldórsdóttir viðurkenningu fyrir nám í listum í Ösp
- Konráð Logi Örvarsson viðurkenningu fyrir nám í stærðfræði og listum í Ösp
- Kristinn Einar Ingvason viðurkenningu fyrir starf í þágu nemenda sem formaður nemendaráðs
- Kristjana Ása Lárusdóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Logi Örn Logason viðurkenningu sem íþróttadrengur Njarðvíkurskóla og almennt góðan námsárangur
- Sara Björk Hrafnhildardóttir viðurkenningu fyrir framfarir í námi
- Sigurbjörg Brynja Helgadóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur
- Vladyslav Voloshyn viðurkenning fyrir framfarir í námi
- Þorgerður Tinna Kristinsdóttir viðurkenningu fyrir hæsta einkunn í íslensku, stærðfræði í grunn- og framhaldsskóla, dönsku, samfélagsfræði,     náttúrufræði og íþróttum. Auk þess viðurkenningu sem íþróttastúlka Njarðvíkurskóla.
- Þóra Vigdís Gustavsdóttir viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur

Á skólaslitum 10. bekkjar héldu Kristinn Einar Ingvason formaður nemendaráðs og Þorgerður Tinna Kristinsdóttir varaformaður ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Torfi Gíslason, Þórdís Björg Ingólfsdóttir og Þórir Rafn Hauksson umsjónakennarar 10. bekkjar héldu einnig ræðu. Útskriftarnemendur fengu hátíðartrefla að gjöf frá skólanum í útskriftargjöf.  Rafn Markús Vilbergsson, skólastjóri ávarpaði nemendur, forráðamenn, gesti og starfsfólk þar sem hann fór yfir skólaárið 2024-2025.
Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið í 83. skipti.