Skólaslit Njarðvíkurskóla vor 2026

Útskriftarhópur skólaárið 2025-2026
Útskriftarhópur skólaárið 2025-2026

Skólaslit Njarðvíkurskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans miðvikudaginn 10. júní hjá nemendum í 1.-10. bekk.

Skólaslit hjá 1.-10. bekk var skipt upp í fjóra hluta: 1.-3. bekkur, 4.-6. bekkur, 7.-9. bekkur og að lokum 10. bekkur.

Skólaslitin byrjuðu á sal þar sem Helena Rafnsdóttir deidarstjóri yngsta stigs ávarpaði nemendur í 1.-3. bekk, Kristín Blöndal deildarstjóri í Ösp ávarpaði nemendur í 4.-6. bekk og Jóhann Gunnar Sigmarsson deildarstjóri elsta stigs ávarpaði nemendur í 7.-9. bekk. Að því loknu fóru nemendur ásamt forráðamönnum í sínar heimastofur þar sem umsjónarkennari fór yfir hápunkta skólaársins og afhendi nemendum sinn vitnisburð.

Á öllum skólaslitum voru flutt tónlistaratriði þar sem nemendur spiluðu og stóðu sig einstaklega vel og þökkum við í skólanum þeim fyrir þeirra flutning. Á skólaslitum hjá 1.-3. bekk voru það Oddur Líndal Sverrisson á píanó og Oliver Aron Kalnins á klarínett, hjá 4.-6. bekkjar spilaði Brynhildur Hrönn Þorradóttir á saxafón og hjá 7.-9. bekkjar spilaði Elin Mia Y. Hardonk á selló og spilaði Geirþrúður Bogadóttir tónlistarkennari á píanó undir hjá henni.

Á skólaslitum 10. bekkjar var það Guðný Björg Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri sem stjórnaði skólaslitunum og spilaði Elísa Natnicha Róbertsdóttir á píanó og síðan söng Guðrún María Geirdal en þær voru báðar að útskrifast úr 10.bekk.

Á skólaslitunum í 10. bekk voru fjölmargar viðurkenningar veittar til einstakra nemenda.
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur fyrir einstakar greinar í 10. bekk. Það eru ýmis félagasamtök í nærsamfélagi skólans sem gáfu verðlaunin og kann Njarðvíkurskóli þeim bestu þakkir fyrir. Eftirtaldir nemendur í 10. bekk fengu viðurkenningu fyrir sinn námsárangur.

- Benedikt Rúnar Harðarson viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði í Ösp.
- Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir viðurkenningu í skólaíþróttum og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Dalia Rosana Mezher Chalgin viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í íslensku sem annað tungumál og sjónlistum.
- Elís Einar Halldórsson viðurkenningu fyrir stærðfræði á framhaldsskólastigi og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Elísabet Fjóla Sveinsdóttir fyrir framfarir í námi.
- Elze Andrijaukskaité viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í íslensku, dönsku, stærðfræði á framhaldsskólastigi og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Ewelina Anna Bryk viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur.
- Guðrún María Geirdal hlaut hátvísisverðlaun Ásgerðar Þorgeirsdóttur fyrrum skólastjóra Njarðvíkurskóla og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Hafdís Inga Sveinsdóttir viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í samfélagsfræði, náttúrufræði, stærðfræði á framhaldsskólastigi, fyrir almennt góðan námsárangur og sem íþróttastúlka skólans.
- Hjálmar Bernhard Oddsson viðurkenningu fyrir matreiðslu í Ösp.
- Hugrún Kara Unndórsdóttir viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í stærðfræði og viðurkenningu fyrir stærðfræði á framhaldsskólastigi og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Hörður Sævar Þórisson viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku í Ösp.
- Karen Ósk Lúthersdóttir viðurkenningu fyrir félagsstörf sem formaður nemendafélags Njarðvíkurskóla og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Karítas Hjörleifsdóttir viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í náttúrufræði og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Orri Már Sverrisson viðurkenningu fyrir almennt góðan námsárangur.
- Pétur Þór Vilhjálmsson viðurkenningu sem íþróttapiltur skólans og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Reynir Ingi Skúlason viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í ensku og heimilisfræði og fyrir almennt góðan námsárangur.
- Rúnar Breki Traustason viðurkenningu fyrir framfarir í námi.
- Snorri Freyr Ingibergsson viðurkenningu í hönnun og smíði.
- Ögmundur Ingi Ögmundsson viðurkenningu frá Kletti björgunarsveit.

Á skólaslitum 10. bekkjar héldu Karen Ósk Lúthersdóttir formaður nemendafélags Njarðvíkurskóla og Vilberg Eldon Logason varaformaður ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Hulda Hauksdóttir, Íris Pétursdóttir og Þórir Rafn Hauksson umsjónakennarar 10. bekkjar héldu einnig ræðu.
Útskriftarnemendur fengu hátíðartrefla að venju að gjöf frá skólanum í útskriftargjöf.  
Rafn Markús Vilbergsson, skólastjóri ávarpaði nemendur, forráðamenn, gesti og starfsfólk þar sem hann fór yfir skólaárið 2025-2026 sem að venju var fjölbreytt og skemmtilegt.
Að lokum var Njarðvíkurskóla slitið í 84. skipti.

Hér að neðan má sjá myndir frá útskrift allra árganga en fleiri myndir munu birtast síðar.