Soffía Ámundadóttir ræddi við nemendur í 7.-10. bekk

Soffía Ámundadóttir talar við nemendur
Soffía Ámundadóttir talar við nemendur

Þriðjudaginn 24. febrúar sl. kom Soffía Ámundadóttir í heimsókn í Njarðvíkurskóla og var með erindi á sal fyrir nemendur í 7.-10. bekk.

Soffía er grunnskólakennari að mennt ásamt því að vera með diplómu í jákvæðri sálfræði. Hún er einnig knattspyrnuþjálfari og leiðbeinir á þjálfaranámskeiðum KSÍ ásamt því að starfa við menntavísindasvið HÍ. Soffía hefur starfað við kennslu og þjálfun í 30 ár og fékk styrk hjá Landsbankanum til þess að fara í grunnskóla og ræða við nemendur um forvarnir gegn ofbeldi.

Nemendur voru mjög flottir á sal og í lokin unnu þau verkefni með því að skrifa falleg orð á bleik hjörtu sem mynduðu svo stórt hjarta á salnum okkar en tilefni bleiku hjartanna er minning um Bryndísi Klöru sem Soffía ræddi um í erindinu sínu.

Viðfangsefni Soffíu voru tengd tilfinningum og tilfinningastjórnun. Hún ræddi um skilgreiningar á ofbeldi og birtingarmyndir auk þess að ræða um mögulegar ástæður fyrir því að börn beita ofbeldi. Þá fór Soffía yfir mikilvægi þess að nemendur hugi að sínu orðspori, hafi jákvæðar fyrirmyndir, sýni samkennd og hafi vaxandi hugarfar.