Njarðvíkurskóli
Dagana 30. nóvember, 1. desember og 2. desember eru starfsdagar í Njarðvíkurskóla og Ösp. Þessa daga fellur öll kennsla niður og frístundaheimili skólans verða lokuð.
Á starfsdögunum heldur starfsfólk Njarðvíkurskóla í námsferð til Brentwood í Englandi þar sem áhersla verður lögð á faglega starfsþróun með leiðsagnarnám að leiðarljósi. Starfsfólk mun sækja fræðslu hjá John Morris, heimsækja skóla og fá innsýn í hvernig leiðsagnarnám er útfært í daglegu skólastarfi.
Markmið ferðarinnar er að efla fagþekkingu starfsfólks, kynnast fjölbreyttum kennsluháttum, afla nýrra hugmynda og læra af reynslu annarra skóla.
Í Njarðvíkurskóla leggjum við ríka áherslu á stöðuga starfsþróun og framfarir í skólastarfi. Með því að skapa starfsfólki tækifæri til að sækja sér nýja þekkingu, miðla reynslu og efla faglegt samstarf stuðlum við að auknum gæðum náms og kennslu með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.