Starfsfólk heiðrað fyrir 25 ára starfsaldur

Starfsafmæli
Starfsafmæli

Fimmtudaginn 5. febrúar heiðraði Reykjanesbær það starfsfólk sem hafði náð 25 ára starfsaldri á árinu 2025. Hér í Njarðvíkurskóla erum við það heppin að margt starfsfólk nær háum starfsaldri hjá okkur. Það voru því þrír starfsmenn frá Njarðvíkurskóla sem voru heiðraðir á þessari samkomu hjá Reykjanesbæ. Þetta voru þau Guðný Björg Karlsdóttir, Sigurlaug Ingvarsdóttir og Zoran Daníel Ljubicic.

Guðný Björg Karlsdóttir var fyrst ráðin til starfa sem umsjónarkennari í 1. og 3. bekk í Myllubakkaskóla skólaárið 1991–1992. Í kjölfarið hóf hún kennaranám og að lokinni útskrift vorið 1995 réði hún sig aftur til starfa í Myllubakkaskóla skólaárið 1995–1996 sem umsjónarkennari í 1. og 4. bekk.
Haustið 1998 hóf Guðný störf við Njarðvíkurskóla og hefur starfað þar óslitið síðan. Fyrst starfaði hún sem umsjónarkennari á yngsta stigi og sinnti jafnframt kennslu í náttúrugreinum á elsta stigi. Vorið 2007 var hún ráðin sem deildarstjóri yngra stigs og gegndi því starfi til ársins 2011. Þá tók hún við tímabundinni stöðu aðstoðarskólastjóra til eins árs og í júní 2012 var hún fastráðin í þá stöðu sem hún gegnir enn í dag.
Kraftur, dugnaður og jákvæðni hafa ávallt einkennt störf Guðnýjar. Hún er mikil skólamanneskja og fyrirmynd í starfi sem hefur með fagmennsku og metnaði verið mikilvægur hlekkur í uppbyggingu og framförum í skólastarfi Njarðvíkurskóla. Guðný hefur sýnt mikla ábyrgð í öllum sínum hlutverkum, sem kennari, deildarstjóri eða sem aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla.
Guðný leggur ríka áherslu á að varðveita góðar hefðir í skólastarfinu. Jafnframt hefur hún mikinn áhuga á þróun og nýjungum í skólastarfi og hefur verið drífandi í að efla faglegt starf, samstarf og heildarsýn innan skólans. Hún hefur verið sterkur og traustur hlekkur í mótun öflugs og jákvæðs skólasamfélags í Njarðvíkurskóla og nýtur mikillar virðingar meðal samstarfsfólks.

Sigurlaug Ingvarsdóttir hóf störf við Njarðvíkurskóla árið 1999. Hún vann fyrst í mötuneyti nemenda skólans og fljótlega tók hún einnig til starfa við frístundaheimili skólans. Frá því að Skólamatur tók yfir rekstur skólamötuneytisins hefur Sigurlaug starfað fyrir Skólamat í Njarðvíkurskóla. Samhliða því hefur hún áfram unnið í hlutastarfi við frístundaheimili Njarðvíkurskóla og við frístundaheimilið í Ösp.
Sigurlaug er mjög almennileg, ljúf og notaleg manneskja. Hún er róleg og þægileg í samskiptum, skapgóð og lætur álag ekki hafa mikil áhrif á vinnubrögð sín. Hún er úrræðagóð og bregst hratt við þegar áskoranir koma upp og finnur jafnan góðar lausnir. Sigurlaug er samviskusöm, leggur sig ávallt fram í starfi og vinnur verkefni sín af mikilli kostgæfni. Hún mætir mjög vel til vinnu, sinnir störfum sínum vel og leysir öll verkefni sem hún tekur sér fyrir hendur af natni. Hún er traustur og dýrmætur starfsmaður fyrir Njarðvíkurskóla.

Zoran Daníel Ljubicic hefur starfað við Njarðvíkurskóla frá árinu 1999 sem almennur starfsmaður og gangavörður. Á þessum tíma hefur hann ávallt sýnt mikla ábyrgð, samviskusemi og tryggð við skólann. Zoran er traustur, hjálpsamur og áreiðanlegur starfsmaður sem sinnir verkefnum sínum vel og mætir mjög vel til vinnu.
Hann er staðfastur í vinnubrögðum sínum og leggur mikla áherslu á góðan aga og öryggi nemenda sem skiptir miklu máli í daglegu starfi innan skólans. Zoran er í góðum samskiptum við bæði nemendur og starfsfólk og nýtur almennrar virðingar innan skólasamfélags Njarðvíkurskóla.
Þá er stutt í húmorinn hjá Zoran sem stuðlar að jákvæðu andrúmslofti. Hann er bónargóður, einstaklega góður félagi og samstarfsmaður og hefur átt stóran þátt í að skapa frábært umhverfi innan skólans.