Stóri plokkdagurinn 2026

Hópur duglegra nemenda að loknu plokki
Hópur duglegra nemenda að loknu plokki

Stóri plokkdagurinn fór fram í Njarðvíkurskóla föstudaginn 24. apríl síðastliðinn. Margir bekkir tóku þátt og var dugnaður nemenda til mikillar fyrirmyndar.

Nemendur gengu um nærumhverfi skólans tíndu rusl og lögðu sitt af mörkum til að fegra og bæta umhverfið. Talsvert magn af rusli safnaðist saman og var það flokkað og sett í plokkker Reykjanesbæjar.

Dagurinn var bæði lærdómsríkur og skemmtilegur og fengu nemendur tækifæri til að upplifa mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og bera ábyrgð á umhverfi sínu.