Sumarhátíð Njarðvíkurskóla

Sumarhátíð Njarðvíkurskóla verður haldin fimmtudaginn 4. maí frá kl. 10:00-12:00. Nemendur mæta í skólann kl. 9:50 og hefst skrúðganga stundvíslega kl.10:00.

Kynning á nýjum formanni nemendaráðs fyrir skólaárið 2026-2027 mun fara fram á Sumarhátíðinni ásamt fjölbreyttri afþreying á skólalóð og í skrúðgarði t.d. veltibíll, vítakeppni, kassabílar, hoppbelgir, krítarstöð, pokakast, Just dance Njarðvíkurskóli, Glimmerbar, Litahlaup og margt fleira.

Mikilvægt er að þátttakendur í Litahlaupinu þurfa að vera í fötum sem mega blotna og fá litaduft yfir sig.

Forráðamenn og aðrir gestir eru velkomnir og þar sem bílastæði starfsfólks verða nýtt fyrir viðburði er mælst til þess að gestir geri ráð fyrir lengri gönguleið að skólanum. 

Að sumarhátíð lokinni kl: 12:00 er frístund fyrir þá nemendur sem eru skráðir. Frístundaheimili bæði í skóla og Ösp eru opin frá 8:15-16:15 fyrir þá nemendur sem eru þar skráðir.