Fimmtudaginn 4. júní var haldin glæsileg sumarhátíð í Njarðvíkurskóla í blíðskaparveðri. Nemendur, starfsfólk, forráðamenn og aðrir gestir komu saman og nutu skemmtilegrar dagskrár sem einkenndist af gleði, samveru og góðri stemningu.
Hátíðin hófst með skrúðgöngu um nágrenni skólans þar sem nemendur gengu fylktu liði og settu skemmtilegan svip á hverfið. Að henni lokinni tóku við fjölbreyttar afþreyingarstöðvar á skólalóðinni þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mikil ánægja vakti þegar veltibíllinn mætti á svæðið og fengu nemendur þar einstakt tækifæri til að upplifa mikilvægi öryggisbúnaðar í bílum á lifandi og fræðandi hátt. Þá voru einnig fjölmargar aðrar stöðvar í boði sem nutu mikilla vinsælda meðal nemenda, má þar nefna Glimmerbarinn þar sem nemendur gátu fengið andlitsmálningu.
Einn af hápunktum dagsins var hið vinsæla litahlaup þar sem Brunavarnir Suðurnesja tóku þátt. Þar sem þeir sprautuðu vatni yfir nemendur áður en þeir hlupu af stað í litahlaupið sem vakti mikla lukku.
Í lok hátíðarinnar bauð Foreldrafélag Njarðvíkurskóla öllum gestum upp á pylsur og var það kærkominn endir á einstaklega vel heppnuðum degi.
Með fréttinni fylgir myndasafn sem gefur góða mynd af þeirri gleði sem einkenndi daginn. Njarðvíkurskóli þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar og gerðu hana að eftirminnilegum degi fyrir nemendur og gesti.