Þemadagar 3.–4. mars – Fordómar, samkennd og samskipti

Þemadagar í Njarðvíkurskóla
Þemadagar í Njarðvíkurskóla

Dagana 3. og 4. mars 2026 verða haldnir þemadagar í Njarðvíkurskóla undir yfirskriftinni: Fordómar – Samkennd – Samskipti

Markmið þemadaganna er að efla nemendur í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum, bæði innan skólans og utan hans. Við leggjum áherslu á að styrkja samkennd, umburðarlyndi og virðingu fyrir fjölbreytileikanum í samfélaginu, auk þess að auka meðvitund um fordóma – hvað þeir eru, hvernig þeir birtast, hvaða áhrif þeir geta haft og hvernig við getum spornað gegn þeim.

Skipulag daganna

Þriðjudagur 3. mars

  • Kennsla samkvæmt stundaskrá kl. 8:15–10:35
  • Að kennslu lokinni tekur við þemavinna út skóladaginn
  • Valgreinar eru samkvæmt stundaskrá

Miðvikudagur 4. mars

  • Skóladagurinn hefst á þemavinnu kl. 8:15–11:15
  • Frá kl. 11:15 tekur við hefðbundin kennsla samkvæmt stundaskrá

Samstarf heimilis og skóla

Við teljum afar mikilvægt að umræðan um fordóma, samkennd og samskipti haldi áfram heima fyrir. Samstarf heimilis og skóla skiptir sköpum þegar kemur að því að móta jákvæð viðhorf og styrkja félagsfærni barna.

Við hvetjum forráðamenn til að:

  • Spyrja barnið hvað það lærði á þemadögunum
  • Ræða aðstæður þar sem einhver verður fyrir óréttlæti eða er skilinn út undan
  • Velta fyrir ykkur saman hvernig hægt sé að sýna öðrum hlýju, virðingu og stuðning
  • Taka dæmi úr daglegu lífi, til dæmis úr vinahóp, í frístundum eða á netinu.

Með sameiginlegu átaki getum við stuðlað að jákvæðara og öruggara skólasamfélagi þar sem allir fá að njóta sín.