Þemadagar: Fordómar, samskipti og samskipti

Nemendur í 9. bekk
Nemendur í 9. bekk

Vel heppnaðir þemadagar um fordóma, samkennd og samskipti í Njarðvíkurskóla

Dagana 3. og 4. mars sl. fóru fram þemadagar í Njarðvíkurskóla. Hefðbundnu starfi var vikið til hliðar fyrir fjölbreytt verkefni undir yfirskriftinni „Fordómar – Samkennd – Samskipti“.

Undirbúningur var í höndum umsjónarkennara og annars fagfólks sem unnu með sínum bekkjum. Markmiðið var að styrkja nemendur í jákvæðum samskiptum og efla samkennd, umburðarlyndi og virðingu fyrir fjölbreytileikanum.

Í gegnum fjölbreytt verkefni tengdum samkennd og samskiptum og leitast við að auka meðvitund um fordóma, áhrif þeirra og leiðir til að sporna gegn þeim. Þemadagarnir tókust afar vel og var mikil ánægja með starfið hjá bæði nemendum og starfsfólki.