Vorhátíð Njarðvíkurskóla 30. maí

Vorhátíð Njarðvíkurskóla verður haldin föstudaginn 30. maí frá kl. 10:00-12:30.
Nemendur mæta í skólann kl. 9:50 og hvetjum við forráðamenn til þess að mæta og eiga góðan dag með okkur í skólanum. 

Dagskrá vorhátíðar:
-Skrúðganga hefst stundvíslega kl. 10:00
-Fjölbreytt afþreying á skólalóð og í skrúðgarði
-BMX-BRÓS sýning
-Ýmsir boltaleikir
-Tetriz
-Boltaleikur 360°
-Liðsganga
-Regnhlíf
-Glimmerbar
-Litahlaup
-Heimsókn frá samfélagslöggæslunni og margt fleira.
-Pylsuveisla í umsjón foreldrafélagsins.

Mikilvægar upplýsingar
-Þátttakendur í Litahlaupinu þurfa að vera í fötum sem mega blotna þar sem Brunavarnir Suðurnesja munu sprauta vatni á þátttakendur fyrir hlaupið.
-Bílastæði starfsfólks verða nýtt fyrir viðburði og því er mælst til þess að gestir geri ráð fyrir lengri gönguleið að skólanum.
-Þetta er skertur nemendadagur og eru nemendur í skólanum frá 9:50-12:30.
-Frístundaheimili bæði í skóla og Ösp eru opin frá 8:15-16:15.

Meðfylgjandi er kort af skólalóðinni sem sýnir staðsetningu viðburða og yfirlit yfir viðburði

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, bæði í skrúðgöngunni og á hátíðinni.